<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, júlí 14

Já sko halló halló
Þið eruð að lesa blogg söluhæsta söluaðila Tupperware í vikum 24-27 (held ég (vikurnar sko, ekki það að ég hafi verið söluhæst :) hihi )...
Takk fyrir takk fyrir
Ég get ekki sagt að ég hafi búist við þessu og viðurkenni fúslega að hafa sett upp svona fegurðarsamkeppnis "nei... ég... ha.... vááá" svip þegar þetta var tilkynnt. Ég fékk gjöf og alles. Ég er samt á því að mér finnst að það eigi að gefa mér svona platta með mynd af mér í ramma til að geta tekið með á kynningar, þannig að það fari ekkert á milli mála að fólk er sko með söluhæsta söluaðila í vikum 24-27 að kynna heima hjá sér...
Hulda hópstjórinn minn fékk líka verðlaun fyrir að vera með söluhæsta hópinn. Ég ætla mér að taka allan heiður að því afreki.
Munið bara næst þegar þið talið við mig að muna ofangreinda staðreind og ávarpa mig ungfrú söluhæst Guðný næst þegar þið ætlið ykkur að ávarpa mig....
text/javascript

This page is powered by Blogger. Isn't yours?