<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, júlí 10

FRÍ
Djöll er kominn tími á frí hjá mér... Ég er búin að vera að vinna stanslaust í 31 dag!!! Og svo tek ég 12 daga í röð eftir það og svo fæ ég helgarfrí til að fara í útilegu með hjúkkunemunum
Það róast allt eftir verslunarmannahelgina :) Ég veit ekki hvaðan ég er að fá þessa aukaorku, guð veit að ég er aldrei svona með námið... Vonandi heldur þetta bara áfram svona þannig að ég geti beint þessari orku að bókunum.
Takk allir sem sendu mér afmæliskveðjur, alltaf svo gaman að vera óskað til hamingju með afmælið :) Svo fer ég út að borða í kvöld með Orra á Lækjarbrekku og svo verður grillað hér heima á morgun með foreldrunum ... ummm... góður matur og smá afslöppun.... ég á það þokkalega skilið eftir alla þessa vinnu...
jæja... farin að slaka á upp í sófa :) læt ekki líða svona langt á milli blogga næst, er að reyna að bæta mig :)
text/javascript

This page is powered by Blogger. Isn't yours?